[16:07]
Frsm. minni hluta fjárln. (Jón Kristjánsson) (andsvar) :
Virðulegur forseti. Hv. 1. þm. Vesturl. talaði um það í ræðu sinni að stjórnarandstæðingar í fjárln. krefðust aukinna útgjalda en gagnrýndu jafnframt halla á ríkissjóði. Ég lét í ljós þá skoðun í minni ræðu að það ætti að nota svigrúmið hjá Lánasjóði ísl. námsmanna til að rétta hag námsmanna. Ég krafðist aukinna útgjalda að því leyti. En hitt vil ég segja að halli ríkissjóðs er nátengdur atvinnustefnunni í landinu. Ég er þeirrar skoðunar að menn ráði ekkert við halla ríkissjóðs vegna þess að þjónustuþörfin er mikil eins og hv. 1. þm. Vesturl. sagði nema að ná tökum á atvinnuþróuninni í landinu. Það er mál númer eitt ef svo má segja og tvö og þrjú. Því að eins og ég gat um í ræðu minni þá er þessi atvinnuvandi jafnframt mesti ríkisfjármálavandinn og drjúgur hluti af halla ríkissjóðs stafar einmitt af ástandinu í atvinnumálum. Þessu má ekki gleyma.