[17:00]
Guðni Ágústsson (andsvar) :
Hæstv. forseti. Mér fannst lítið koma út úr þessari ræðu hv. þm. Ég hef ekki verið að fara fram á annað en almenna reglu og vandi sjúkrahúsanna í heild væri skoðaður. Ég hef vakið athygli á því að í gegnum þessi fjáraukalög eru þó þrjár stofnanir í sitt hverju kjördæminu sem fá heildarfyrirgreiðslu á meðan vandi annars staðar, sem er ógnþrunginn, og endar auðvitað með miklum erfiðleikum, lendir í strandi. Ég hefði miklu fremur viljað sjá að málefni sjúkrahúsanna á landsbyggðinni og sjúkrahúsanna í landinu yrðu leyst eftir því sem hægt væri. Ég er ekkert á móti skriflegu samkomulagi og tel það eðlilegt eins og þingmaðurinn benti á að þannig verði farið að. Mín krafa var því fyrst og fremst sú, hv. þm., að sjúkrahúsin í landinu sætu við sama borð. Ég óttast það þegar stóru sjúkrahúsin í Reykjavík og þessar þrjár eða fjórar stofnanir til viðbótar hafa fengið sína fyrirgreiðslu að það verði mjög erfitt hjá mörgum öðrum landsbyggðarsjúkrahúsum að fá sambærilega leiðréttingu og þau muni á næstu mánuðum glíma við gríðarlegan vanda nema fjárveitingavaldið gangi til samninga við þau. Það er það sem ég er að reyna að fá fram í þessari umræðu.