[17:31]
Fjármálaráðherra (Friðrik Sophusson) (andsvar) :
Virðulegi forseti. Hv. þm. hélt því fram að ríkisstjórnin héldi kvöldfundi til að reyna að jafna ágreining á milli stjórnarflokkanna um framlagningu frumvarpa. Það er ekki rétt. Hins vegar höfum við haldið fundi að degi til en það þarf að koma fram að dimmir fljótt á daginn og eðlilegt er að syfjaðir hv. þm. rugli saman síðdeginu og kvöldinu um háskammdegið.
Það er rétt að frumvörp koma nokkuð seint fram en það er sérstaða nú miðað við það sem hefur oftast gerst áður. Hún felst í því að þess er ekki að vænta að inn á Alþingi komi frumvörp til íþyngingar í sköttum. Það stendur þannig á að einungis er verið að ræða um hvort það eigi að hliðra til sköttum en ekki að hækka skatta. Þessi sérstaða gerir það að verkum að ég treysti því að það verði auðvelt að koma fram leiðréttingarfrumvörpum þótt þau komi seint fram. En tek undir það sem hv. þm. sagði að auðvitað hefði verið heppilegra að slík frv. kæmu fram fyrr.
Ríkisstjórnin ásamt formanni og varaformanni fjárln. hafa einnig rætt um frágang fjárlagafrv. á næsta ári og ég sé ekki að þar séu óyfirstíganleg vandamál á ferðinni.
Þá vil ég loks taka fram að frv. um ráðstafanir í ríkisfjármálum hefur komið fram, sem mér þótti eðlilegt áður en til 2. umr. fjárlaga kemur. Það frv. liggur frammi og verður til umræðu fljótt eftir helgi.
Loks vil ég vara hv. þm. Framsfl. við því, nú sem áður, að draga of miklar ályktanir af niðurstöðutölum í fjáraukalögum því á undanförnum árum hefur komið í ljós að hallinn hefur í raun orðið minni
en þeir spáðu, sem betur fer.