[23:45]
Pétur Bjarnason (andsvar) :
Virðulegi forseti. Ég held að það sem hefði verið vænlegast fyrir ferðaþjónustuna til þess að greiða fyrir því að ferðamenn gætu verið hér, væri að fella niður virðisaukaskatt af þeirri þjónustu sem þarf að veita þeim. Ég ætla ekki að gera lítið úr því að ferðaþjónustan hefur skilað milljörðum og við getum kannski tekið 13--14 milljarða í gjaldeyristekjur. Við getum farið með þessa tölu upp í 25--30 milljarða ef við erum að tala um ferðamál innan lands því það er líka atvinnuvegur. Hér er um að ræða geysilega stóran og þýðingarmikinn atvinnuveg og því segi ég: Af hverju gerir ríkisstjórnin ekki eitthvað fyrir þennan atvinnuveg svo stór sem hann er þegar hann fer að skipta tugmilljörðum eins og t.d. að fella niður ýmis gjöld þannig að við getum boðið ferðamönnum upp á viðunandi verðlag á þeim vörum sem við erum að bjóða fram og getum þá fjölgað þeim og fengið enn meiri tekjur? Ég segi það að ferðamálin hafa vaxið svona, ekki vegna þess að stjórnvöld hafi hlúð svo að þessari grein heldur þrátt fyrir að hún hafi ekki gert það. Það er það merkilega og ætti að verða mönnum lærdómsríkt til þess að þeir gætu notað sér þennan vöxt, stutt við hann í stað þess að herða alltaf að eins og hér er gert. Það getur vel verið að í huga hæstv. forsrh. séu þetta bara smáaurar. Það vill svo til að Ferðmálaráð er svelt með fjármuni og 130 millj. kr. eru ekki smáaurar, hæstv. forsrh., í höndum þeirra sem eru að skipuleggja ferðamál og kynna Ísland út á við. Það er mjög veigamikill þáttur í þeirri starfsemi sem ráðið á að reka og það er mjög nauðsynlegt að fá þessar tekjur þó að hæstv. forsrh. kjósi að kalla þetta smáaura.