[01:09]
Steingrímur J. Sigfússon (andsvar) :
Hæstv. forseti. Það er fullkomlega eðlilegt að hæstv. fjmrh. sé sár og reiður í þessu máli og í vondri stöðu og reynir að klóra yfir frammistöðu sína í þessum efnum með harla ömurlegum hætti. Það liggur fyrir, hæstv. fjmrh., að þvert ofan í gert samkomulag tveggja ráðherra við sveitarfélögin á síðasta ári er lagt fram fjárlagafrv. í haust sem gerir ráð fyrir áframhaldandi greiðslum sveitarfélaganna upp á 600 millj. kr. til fjármögnunar Atvinnuleysistryggingasjóðs. Síðan er að vísu sagt að á móti eigi að koma sérstök átaksverkefni í einhverjum mæli. Útkoman úr því undanfarin ár er sú að sveitarfélögin greiða 600 millj. inn en ekki nema hluti þeirra fjármuna fer út aftur í gegnum einhver verkefni. Að stórum hluta til hefur þess vegna þarna átt sér stað einhliða fjármögnun sveitarfélaganna á Atvinnuleysistryggingasjóði. Þetta liggur fyrir og þetta vita menn. Þetta samkomulag frá því í fyrravetur milli hæstv. fjmrh. og félmrh. og sveitarfélaganna er alveg skýrt og hefði fjárlagafrv. gengið fram eins og ríkisstjórnin lagði það inn á borð þingmanna í krafti síns þingmeirihluta þá hefði í því falist brot á samkomulaginu við sveitarfélögin. Þetta er eins skýrt og nokkuð getur verið. Það er alveg sama hvernig ríkisstjórnin reynir aftur að klóra sig í land núna þegar hún er búin að gefast upp í málinu, þegar hæstv. fjmrh. er loksins búinn að berja höfðinu nógu oft við steininn og sér að hann kemst ekki upp með þetta. Þessar staðreyndir verða ekki þurrkaðar út.
Í fjárlagafrv. eins og það var lagt fram fólst áform um að brjóta samkomulagið við sveitarfélögin.