Hlutafélög

62. fundur
Laugardaginn 17. desember 1994, kl. 13:48:44 (2872)



[13:48]
     Finnur Ingólfsson :
    Virðulegi forseti. Ég ætla að gera grein fyrir atkvæði mínu. Þannig er að ef hlutafélög ætla að fara út á hinn almenna hlutabréfamarkað þá er þeim gert skylt samkvæmt lögum að afnema allar hömlur með viðskipti á hlutabréfum. Hins vegar er ekki verið að fjalla um þann þátt við þessa umræðu. Því var þetta útúrsnúningur hjá hv. 8. þm. Reykn.