[13:54]
Steingrímur J. Sigfússon :
Hæstv. forseti. Þetta ákvæði var mikið rætt og skoðað í efh.- og viðskn. og niðurstaðan varð að sæmileg sátt tókst um það að ganga svona frá málinu á þessu stigi eins og 10. tölul. brtt. gerir ráð fyrir. Ég lét koma fram í máli mínu í morgun að í trausti þess að áfram yrði unnið að því að skoða hvernig best væri að ganga frá ákvæðum í löggjöf, sem settu því skorður að menn gætu ítrekað og endurtekið leikið þann leik að setja fyrirtæki á hausinn og stofna til atvinnurekstrar á nýjan leik, tel ég að í öllu falli sé ekki vafi á því að ákvæðið er til bóta svo langt sem það nær. Efnislegar röksemdir komu gegn því að það gætu verið meinbugir á því að lögfesta ákvæði frv. óbreytt og í ljósi þeirra aðstæðna þá tel ég að skynsamlegt sé að standa að samþykkt 10. tölul. og mun greiða honum atkvæði.