[17:20]
Guðni Ágústsson (andsvar) :
Hæstv. forseti. Þetta er nú kannski dæmigerð ræða og lýsir best hvers vegna skattsvikin halda svo áfram. Hér kemur hv. þm. Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrv. hæstv. fjmrh. þessa lands, sem hafði öll mál í sinni hendi og stóð sig oft vel í sambandi við að herða á reglum gagnvart skattsvikurum. Nú kemur hann þó eigi að síður hér upp litlu eftir að hann er hættur, svona þremur árum eftir að hann er hættur sem fjmrh., og ber upp á hestamenn gríðarleg skattsvik. Fullyrðir það í ræðu sinni að þeir ástundi skattsvik. Ég hef enga sannfæringu fyrir því. Nú kann það vel að vera að það viðgangist þar eins og annars staðar, en mér finnst kannski þetta vera vandamál skattsvikanna á Íslandi að þessir hæstv. fjármálaráðherrar koma alltaf eftir á og spyrja. Þeir nota aldrei valdið sem þeir hafa til þess þá að fara ofan í málið til fulls og taka á því. Ég er sannfærður um að hestamenn eru ekki verri skattsvikarar eða meiri heldur en margir aðrir hópar.
Hvað varðar hin atriðin þá er það nú svo að þegar barnið hefur ekki verið skírt þá er ekki hægt að nefna það sérstaklega með nafni. Við vitum ekki svo gjörla hvað nýju bændasamtökin muni heita, við búumst við að það verði kannski Búnaðarfélag Íslands. En við verðum, hv. þm., að tala í núinu. Þetta eru samtök bænda landsins í dag og það skilja það flestir læsir og hugsandi menn eftir að þessi breyting hefur farið fram að þá er átt við þá aðila sem eru í því í dag og þá aðila sem taka við. Þannig að þetta veldur allavega ekki neinni flækju í mínu höfði, hæstv. forseti. Mér finnst þetta auðskilið. (Forseti hringir.) Síðan var það með sameininguna. (Forseti hringir.) Það var farið vel yfir þetta, hæstv. forseti, og engar athugasemdir við það gerðar.