Fjáraukalög 1994

66. fundur
Miðvikudaginn 21. desember 1994, kl. 11:09:16 (2994)


[11:09]
     Frsm. meiri hluta fjárln. (Sigbjörn Gunnarsson) (andsvar) :
    Virðulegur forseti. Vegna orða hv. þm. Jóns Kristjánssonar hér á undan þá vil ég láta þess getið að þskj. 443 hefur verið prentað upp og á brott felld niðurlagssetningin um Byggðastofnunarkaflann og reyndan tvö orð í kaflanum sjálfum annars staðar. Við alþýðuflokksmenn höfum ekkert við það að athuga. En ég get hins vegar að sjálfsögðu ekki svarað fyrir Sjálfstfl.