Fjáraukalög 1994

66. fundur
Miðvikudaginn 21. desember 1994, kl. 12:21:12 (3007)


[12:21]
     Egill Jónsson (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ég vil að það komi skýrt fram að ég spurðist ekki fyrir um það hvað stæði í fjárlagafrumvarpi. Mér er það fullkomlega ljóst að þar eru ekki neinar tillögur um fjárveitingar til jarðræktarframkvæmda.