Fjáraukalög 1994

66. fundur
Miðvikudaginn 21. desember 1994, kl. 12:21:47 (3008)


[12:21]
     Sturla Böðvarsson (andsvar) :
    Hæstv. forseti. Vegna ræðu hv. 3. þm. Austurl. þá vil ég að það komi fram hér við þessa umræðu að ég hef ekki uppi neinar tillögur og hef ekki gert kröfu um það að það verði gerðar breytingar á jarðræktarlögum í tengslum við það frv. sem við erum að fjalla hér um. Jafnframt vil ég vekja athygli hv. þm. á því, vegna þess sem hann sagði um framlög til sauðfjárræktarsvæða, að við erum að fjalla um í þessu fjáraukalagafrv. sem hér liggur fyrir framlög til sauðfjárræktarsvæða. Ég vil að því sé haldið til haga hér við þessa umræðu.