[14:37]
Svavar Gestsson (andsvar) :
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. fjmrh. fyrir svörin. Ég skil vel að hann hafi ekki haft nákvæmlega á takteinum svör við þessum spurningum sem ég bar fram. En ég áskil mér rétt til að fylgja þessu eftir á öðrum vettvangi. Ég tel að hér sé hætta á því ef skilningur hv. þm. Jóhönnu Sigurðardóttur er réttur og ef tillaga hennar yrði felld að þá væru menn að hafa af Framkvæmdasjóði fatlaðra 100 millj. kr. Ég ætla
ekki að taka þátt í því og mun þess vegna beina á ný fyrirspurn til hæstv. fjmrh. undir umræðunum um fjárlög fyrir árið 1995 jafnframt því sem málið hlýtur líka að koma til skoðunar í atkvæðagreiðslunni sjálfri. En ég fer fram á það við hæstv. fjmrh. að hann kanni eins og hann getur hvort hann getur fengið nákvæm svör við þeim spurningum sem ég bar fram áðan. Ég óska sem sagt eftir að hæstv. fjmrh. afli svara við spurningunum sem ég bar fram áðan þannig að það megi átta sig á málinu áður en þetta mál kemur til endanlegrar afgreiðslu í þessari stofnun. Eins og ég sagði áðan ætla ég ekki að taka þátt í því að hafa af Framkvæmdasjóði fatlaðra 100 millj. kr. eins og hv. þm. Jóhannsa Sigurðardóttir virðist telja að sé á leiðinni þó hún hafi ekki rukkað nokkurn mann þann tíma sem hún var félmrh. og hefði átt að sinna þessum sjóði sérstaklega.