[16:28]
Kristín Ástgeirsdóttir (andsvar) :
Virðulegi forseti. Það er ekki ein báran stök í störfum Alþingis þessa dagana. Það liggur mikið á og mál hafa verið seint á ferðinni. Ég vil af því tilefni beina spurningu til formanns hv. fjárln. Í þingsköpum Alþingis segir, með leyfi forseta:
,,Til efh.- og viðskn. vísar fjárln. frv. til lánsfjárlaga og tekjugrein fjárlagafrv. Nefndirnar skila fjárln. áliti og tillögum svo tímanlega fyrir 2. umr. fjárlaga sem fjárln. ákveður. Efh.- og viðskn. skal gera grein fyrir áhrifum skattalagabreytinga á tekjur ríkissjóðs fyrir 3 umr.`` --- Nú bið ég formanninn að hlusta. --- ,,Álit og tillögur nefndanna skal prenta sem fylgiskjöl með nefndaráliti fjárln. eða meiri hluta hennar.``
Hér liggur fyrir frhnál. fjárln. og umræðan hefur hafist án þess að þetta álit meiri hluta og minni hluta efh.- og viðskn. sé prentað með. Og mér finnst mjög óeðlilegt að halda þessari umræðu áfram fyrr en þetta hefur verið leiðrétt og ég hlýt að spyrja um skýringu á þessu. Ég get ímyndað mér að hér sé um einhvers konar mistök að ræða í þeim handagangi hefur verið í öskjunni, en það er óviðunandi að hefja umræðuna með þessum hætti og að menn geti ekki haft fyrir framan sig álit efh.- og viðskn. Það er til lítils að vera að leggja á sig mikla vinnu við að fara yfir tekjugrein frv. og skattalagatillögur ríkisstjórnarinnar ef það getur svo ekki orðið innlegg í þá umræðu sem hér á að fara fram.