Fjárlög 1995

66. fundur
Miðvikudaginn 21. desember 1994, kl. 16:29:49 (3040)


[16:29]
     Frsm. meiri hluta fjárln. (Sigbjörn Gunnarsson) (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Þegar ég hóf ræðu mína var mér ekki ljóst að þarna höfðu orðið þessi mistök sem því miður urðu við frágang skjala í skrifstofu þingsins. Innan örfárra mínútna mun þessum skjölum verða dreift og um það get ég ekkert frekar sagt en beðist afsökunar, en það var hárrétt athugasemd sem hv. þm. gerði. Það munu líða örfáar mínútur þar til skjalið verður komið í þeirri mynd sem þingsköp kveða á um.