Fjárlög 1995

66. fundur
Miðvikudaginn 21. desember 1994, kl. 22:07:09 (3085)


[22:07]
     Svavar Gestsson (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir þessi svör. Þau út af fyrir sig staðfesta bara það sem má segja að liggi í augum uppi að skuldirnar á A-hluta ríkisreikningsins hafa aukist um 40--50 milljarða kr. í hans tíð. Það eru alveg gríðarleg tíðindi fyrir varaformann Sjálfstfl. vænti ég og kjósendur hans líka.