[01:48]
Jón Kristjánsson :
Virðulegi forseti. Það hefur komið í ljós að sú nefnd sem starfar á bak við þennan fjárlagalið hefur haldið einn fund á síðasta ári norður í Hornvík. Nú er útlit fyrir að hún geti haldið fund hér einhvers
staðar nær, en væri þá ekki rétt að verja þessum 300 þús. kr. til styrktar dreifbýlisversluninni. Þess vegna greiði ég atkvæði á móti þessum lið.