Fjárlög 1995

66. fundur
Fimmtudaginn 22. desember 1994, kl. 02:11:05 (3156)

[02:11]
     Jón Kristjánsson :
    Virðulegi forseti. Hér er dæmi um vafasamar aðgerðir á 6. gr. þar sem er verið að lækka heildargjöld stofnana á 6. gr. sem fjárln. er nýbúin að skipta fjárhæðum á. Þó að því sé varið í ágætis málefni þá er þetta ekki góður siður í lagasetningu. Því mun ég sitja hjá við þessa grein.