Lánsfjárlög 1995

68. fundur
Þriðjudaginn 27. desember 1994, kl. 22:21:10 (3220)


[22:21]
     Jóhannes Geir Sigurgeirsson (um fundarstjórn) :
    Virðulegi forseti. Ég get í meginefnum tekið undir orð hv. 8. þm. Reykn. að það var gert ákveðið samkomulag um að klára þetta mál í kvöld en það virðist nú vera í upplausn vegna sundurlyndis í þingflokki Sjálfstfl. ( VE: Það getur ekki verið.) þannig að við verðum í það minnsta að fá rækilega skýringu á því eftir þetta hlé, sem er gert að beiðni að mér skilst þingflokksformanns Sjálfstfl., ( VE: Hann ætti bara að sitja fundinn.) hvað sé að gerast þarna. Nei, virðulegi þingmaður, ég frábið mér algerlega að sitja þann fund.