[23:05]
Geir H. Haarde (um fundarstjórn) :
Virðulegi forseti. Það er eins og fyrri daginn að hv. 8. þm. Reykn. á erfitt með að fara með rétt mál. Það hefur ekki verið haldinn neinn neyðarfundur í þingflokki sjálfstæðismanna. Sex eða sjö sinnum hefur hann tekið sér þetta orð í munn fyrir og eftir þetta hlé sem ég óskaði eftir að við fengjum til að ræða mál í þingflokki sjálfstæðismanna. Það er eins og hv. þm. mundi segja lýðræðisvenja í okkar flokki að halda þingflokksfundi þegar eftir því er óskað. Það var eftir því óskað í kvöld. Sá fundur var haldinn og honum er nú lokið.
Það er líka rangt hjá hv. þm. að það hafi ekkert verið rætt um þessi mál við forustumenn annarra flokka. Það eru bara hreinustu ósannindi vegna þess að formenn þingflokka sátu á fundi saman að viðstöddum fjmrh. áður en þessi þingflokksfundur var haldinn þar sem þetta var m.a. ítarlega rætt, fundarefni okkar fundar svo að ég held að hann ætti aðeins að kynna sér betur það sem hann er að tala um. Það er kannski til of mikils mælst og hefur löngum verið að hann geri það en þessar ávirðingar eru gersamlega úr lausu lofti gripnar.
Varðandi hins vegar það samkomulag sem við formenn þingflokka gerðum og handsöluðum í síðustu viku um fundarhaldið í dag þá stendur það auðvitað og hlýtur að gera að fundarhöld gangi þannig fram að 3. umr. um þetta mál geti lokið. Við höfum hins vegar talað um það að atkvæðagreiðsla verði ekki fyrr en á morgun og er það út af fyrir sig sjálfsagt mál. En það er ekkert tilefni til þess að verða við kröfu formanns Alþb. um að fresta þessum umræðum. Hún var reyndar komin fram fyrir fundarhléð áðan.
Þetta vildi ég láta koma fram, virðulegi forseti. Í öðru lagi verð ég að segja alveg eins og er að formann Alþb. varðar ekkert um það sem fram fer á þingflokksfundi sjálfstæðismanna og á engan rétt á neinni skýrslu um það sem þar fer fram.