Lánsfjárlög 1995

68. fundur
Miðvikudaginn 28. desember 1994, kl. 01:05:23 (3251)


[01:05]
     Utanríkisráðherra (Jón Baldvin Hannibalsson) (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Mér láðist að geta þess áðan að forsenda þessara tillagna var sú að rekstur fríhafnarverslana skili ríkissjóði áfram svipuðum tekjum og verið hefur og hefur því ekki neikvæð áhrif á afkomu ríkissjóðs.