[01:06]
Utanríkisráðherra (Jón Baldvin Hannibalsson) (andsvar) :
Virðulegi forseti. Það er nú eðli málsins samkvæmt svo að útfærsla tillagna af þessu tagi í smáatriðum á ekki að ræða úr ræðustól á Alþingi heldur í nefnd sem fjallar um málið. En hafi hv. þm. ekki heyrt það sem ég hér sagði þá eru tekjustofnanir þessir: Það er aukið umfang í verslunarrekstri og aukin velta og aukin tekjuöflun og það er aukningin á þeim verslunarrekstri sem á að renna til flugstöðvarinnar sjálfrar. Það er ekki rétt að menn gefi sér þá forsendu að ekki megi breyta leigugjöldum að svo miklu leyti sem þau verða núna veltu- og tekjutengd. Og það er aukningin á tekjum vegna húsaleigu að hluta til
sem á að skila sér til þess að standa undir lánum. Því næst er ein tillagan sú að tekjustofn flugmálaáætlunar að einum þriðja renni til þess að standa undir gjöldum af lánum flugstöðvarinnar í stað þess að renna til annarra þarfa flugmálaáætlunar með þeim rökum að byggingarframkvæmdum er þar vel á veg komið. Það er eina breytingin á því hvernig tekjum af þessari starfsemi hefur verið varið hingað til.
Því næst byggjast þessar tillögur á því að það er um að ræða sjálfstæða rekstrarstjórn og sveigjanlega gjaldskrá til þess að auka flug og umferð sem líka er metið að skili auknum tekjum. Forsenda fyrir þessu var að skerða ekki núverandi tekjur ríkissjóðs en dæmið samt sem áður getur gengið upp með þessum hætti.