[03:53]
Fjármálaráðherra (Friðrik Sophusson) (andsvar) :
Virðulegi forseti. Ég er að reyna að skýra það út fyrir hv. þm. og reyndar öðrum hér inni að hér er um mjög eðlisólík mál að ræða. Annars vegar, og það skal tekið fram vegna umræðunnar um Þórslax, þá tek ég fyllilega undir allt sem sagt hefur verið um eigendur fyrirtækisins, dugnað þeirra og þeir hafa lagt mikla fjármuni fram úr eigin rekstri. Það verður kannski ekki það sama hægt að segja um fjölmörg önnur fyrirtæki sem hafa farið á hausinn. Við höfum tapað milljörðum á þessari nýju atvinnugrein, því miður. En þetta eru ólík fyrirtæki vegna þess að það fyrirtæki sem verið er að ræða um nú, fyrirtækið Silfurlax, það er ekki verið að veita því fyrirtæki afurðalán. Það er í þeim skilningi eins og hin fyrirtækin fengu lán út á og ábyrgðir út á, það er verið að taka fram að þetta sé alveg sérstakt lán til þess að klára ákveðna þróunarstarfsemi, ákveðna rannsóknastarfsemi sem talin er ákaflega mikilvæg fyrir þekkingu á þessu sviði. Þetta er eina fyrirtækið sinnar tegundar sem hér starfar og mjög miklir erlendir peningar eru lagðir til fyrirtækisins. Það er á þessum grunni og vegna þess að þetta er viðskiptafyrirtæki við fyrirtæki í eigu opinberra aðila sem hefur mikilla fjárhagslegra hagsmuna að gæta í þessu máli sem þessi leið var valin sem farin var með þessari tillögu.
Hitt málið er hins vegar sambærilegt öðrum málum sem snúa að ábyrgðadeild fiskeldislána og ég veit að hv. þm. þekkir þau mál vel. Það var verið að gera þar upp samkvæmt niðurstöðu nefndar sem skilaði áliti 5. júlí og þar hefur ríkið auðvitað tapað sínu, þar á meðal inn í þetta gjaldþrot sem varð hjá Þórslaxi hf.
Þetta vil ég að komi fram hérna, virðulegi forseti, áður en umræðan fer að snúast um Landsbankann og fleiri slík lán.