Lánsfjárlög 1995

68. fundur
Miðvikudaginn 28. desember 1994, kl. 04:30:18 (3312)


[04:30]
     Viðskiptaráðherra (Sighvatur Björgvinsson) (um fundarstjórn) :
    Virðulegi forseti. Með sama hætti og hv. þm. Jóhannes Geir leiðrétti sig hér áðan og sagðist ekki hafa ætlað að segja dögun heldur döngun þá er rétt að ég leiðrétti mig. Ég ætlaði ekki að segja Sýn heldur Stöð 2. En að öllu öðru leyti var þetta nákvæmlega svona, að ég hrökk upp og vaknaði við það að hv. þm. gekk úr ræðustól og óskaði eftir nærveru minni. (Gripið fram í.)