Lánsfjárlög 1995

69. fundur
Miðvikudaginn 28. desember 1994, kl. 13:59:35 (3333)


[13:59]
     Egill Jónsson :
    Virðulegi forseti. Ég er mikill stuðningsmaður fiskeldis landinu og tel að fiskeldi eigi mikla framtíð fyrir sér. Ég tel þess vegna að sú tillaga sem hér er fram lögð sé fordæmisgefandi, hún sé einungis fyrsta sporið í þá veru að ganga til liðs við þessi fiskeldisfyrirtæki. Undir öðrum kringumstæðum væri þessi tillaga þingleg óhæfa. Þess vegna segi ég já.