Brunatryggingar

69. fundur
Miðvikudaginn 28. desember 1994, kl. 14:10:13 (3336)


[14:10]
     Guðrún J. Halldórsdóttir :
    Virðulegi forseti. Þegar þetta mál var til umræðu og afgreiðslu í heilbr.- og trn. sem ég sit í hafði ég miklar efasemdir og skrifaði undir nefndarálitið sem hér fylgir með fyrirvara. Efasemdir mínar hafa aukist eftir því sem frá hefur liðið og ég hugsað meira um þetta mál og fengið fleiri hliðar á málum og gögn í málunum. Ég mun því sitja hjá við afgreiðslu þessa frv. í þeirri von og ósk að málið verði aftur tekið upp í heilbr.- og trn. áður en það kemur til 3. umr. í þinginu.