Ráðstafanir í ríkisfjármálum 1995

69. fundur
Miðvikudaginn 28. desember 1994, kl. 16:21:23 (3376)


[16:21]
     Forsætisráðherra (Davíð Oddsson) (andsvar) :
    Hæstv. forseti. Ég geri ekki lítið úr þessu ágæta yfirliti hv. þm. þó að ég segi um þátt héraðslæknanna að ég láti mér nægja að vísa til þeirra orða sem féllu í andsvari mínu við ræðu hv. 15. þm. Reykv.
    Varðandi það atriði sem hv. þm. vék að um breytingu á lögum nr. 30/1966, um meðferð, skoðun og mat á sláturafurðum, þá er ég sammála hv. þm. að þessi breyting eigi ekki við á þessum stað óháð efni málsins. Menn geti þá komið því fyrir með öðrum hætti og er honum sammála um að það er eðlilegra form að brtt. verði ekki bætt inn í frv.