Samningur um stofnun Alþjóðaviðskiptastofnunar

72. fundur
Fimmtudaginn 29. desember 1994, kl. 11:52:12 (3403)


[11:52]
     Jón Helgason (andsvar) :
    Hæstv. forseti. Ég mun ræða þetta mál efnislega síðar en ég vildi aðeins koma hér upp og þakka hæstv. forsrh. fyrir þau orð sem hann sagði og ég get tekið undir að flestu eða öllu leyti og þó sérstaklega það sem hann talaði um málefnalega afstöðu landbúnaðarins til þessa samnings. En sú afstaða landbúnaðarins hefur að sjálfsögðu mótast af því að hann væntir þess að afstaða ríkisvaldsins verði þá málefnaleg í verki og því vildi ég nota þetta tækifæri og spyrja hæstv. forsrh. að því hvort nú muni ekki fyrir áramótin á sama hátt og við afgreiðum þetta mál fyrir áramótin verða birt reglugerð um jöfnunargjöld sem útflutningur landbúnaðarafurða á að njóta samkvæmt þeim lögum sem þegar hafa verið sett um það.