Samningur um stofnun Alþjóðaviðskiptastofnunar

72. fundur
Fimmtudaginn 29. desember 1994, kl. 11:54:21 (3405)


[11:54]
     Jón Helgason (andsvar) :
    Hæstv. forseti. Ég vil þakka hæstv. forsrh. fyrir það að lýsa yfir vilja sínum til þess að þessi reglugerð birtist sem fyrst og það er að sjálfsögðu rétt að það er á forræði hæstv. landbrh. að gefa hana út, en það er mjög mikils virði að vita það að hæstv. forsrh. mun gera það sem hann getur til þess að hraða útgáfu hennar og ég mun þá spyrja hæstv. landbrh. að því síðar í þessari umræðu hvernig þessi vinna stendur.