[17:10]
Utanríkisráðherra (Jón Baldvin Hannibalsson) (andsvar) :
Virðulegi forseti. Það er mikill misskilningur hjá hv. 1. þm. Norðurl. v. að verkaskipting í Stjórnarráði Íslands sé ákveðin með þáltill. Svo er ekki. Það er gert með lögum. Og svarið við spurningu hv. þm. um það hver er verkaskiptingin og hvert er valdsvið landbrh., fjmrh. og viðskrh. er að finna að því er varðar rétt ráðherra til að leggja á jöfnunargjöld við innflutning landbúnaðarafurða með þeim takmörkunum sem ég kynnti áðan. Þetta er í lögum frá 15. apríl 1994, breytingar á búvörulögum. Landbrh. hefur rétt til þess að ákvarða verðjöfnunargjöld en með þeim takmörkunum að hann verður að ráðfæra sig við nefnd. Ef ágreiningur rís þá fer það fyrir ríkisstjórn. Það eru lögin í landinu.
Að því er varðar aðlögunartíma að framkvæmd GATT eftir að við erum orðnir aðilar þá er hann strangt til tekið enginn og hin almenna þjóðarréttarregla er sú að þegar við höfum gerst aðilar að alþjóðasamningi þá ber okkur að virða þær skuldbindingar sem í samningnum felast út af fyrir sig frá fyrsta degi.
Að því er varðar lágmarksaðgang sem hv. þm. hefur spurt um áður, hvert fyrirkomulagið verður, þá get ég ekki svarað því af þeirri einföldu ástæðu að þetta ásamt með ýmsum öðrum málum um framkvæmd og útfærslu og lagabreytingar er til umfjöllunar í starfshópi undir forustu forsrn. sem hefur það hlutverk að skila slíkum tillögum og vinnur að þeim áfram. Ég hef lýst hver mín skoðun er á því hvernig það fyrirkomulag ætti að vera til þess að tryggja hámarkshagsmuni neytenda að koma í veg fyrir verðhækkanir.
Hv. þm. spurði um osta. Ef um er að ræða osttegund sem ekki er framleidd hér á landi, hvað gerist með hana? Ef um er að ræða framleiðslu sem er sérstök og ekki framleidd hér á landi þá er það ekki landbrh. að ákveða verðjöfnunargjald heldur fer með það mál samkvæmt tollskrá og það er í höndum fjmrh.