Tekjuskattur og eignarskattur

72. fundur
Fimmtudaginn 29. desember 1994, kl. 21:12:24 (3460)


[21:12]

     Landbúnaðarráðherra (Halldór Blöndal) (andsvar) :
    Herra forseti. Hv. þm. svaraði því ekki sem mér finnst nauðsynlegt að fram komi, hvort í tillögum hans felist hækkun á sköttum þess launafólks sem er með 150--160 þús. kr. Ég held að það sé alveg óhjákvæmilegt að fá það skýrt.
    Ég held að það sé líka nokkur mælikvarði á hvað hv. þm. meinar ef hann mundi nú t.d. gefa okkur á blaði þó að ekki væri í formlegu þingskjali útfærslu á sinni tillögu þannig að það sé þá hægt að athuga efni hennar og reyna að gera sér grein fyrir því hvað hv. þm. á við.