Tekjuskattur og eignarskattur

72. fundur
Fimmtudaginn 29. desember 1994, kl. 21:50:13 (3465)


[21:50]
     Kristinn H. Gunnarsson (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Vilhjálmi Egilssyni fyrir svörin. Ég skil hann þannig að þetta sé alveg ótvírætt að þegar aðstæður sem viðkomandi eigandi hlutabréfanna ræður ekki við verða þess valdandi að eignarhaldstíminn næst ekki þá lendi það ekki á honum að endurgreiða fenginn skattafslátt. Þetta er þá alveg skýrt og ég vil þakka honum fyrir svörin.