Mat á sláturafurðum

73. fundur
Föstudaginn 30. desember 1994, kl. 01:17:43 (3490)


[01:17]

     Landbúnaðarráðherra (Halldór Blöndal) (andsvar) :
    Hæstv. forseti. Það liggur ekki ljóst fyrir á þessari stundu hver kostnaðurinn verður. Ég held að það sé alveg rétt hjá hv. þm. að talan í fjárlagafrv. er óþarflega há, en hún felur ekki í sér skuldbindingu til þess að innheimta svo mikið. Ég held að það sé alls ekki þannig.
    Ég vil ítreka það sem ég sagði: Það hefur aldrei staðið til að ein einasta króna af þessu gjaldi renni í ríkissjóð sem ríkissjóðstekjur til annarra þarfa en hér um ræðir.