[01:18]
Samgönguráðherra (Halldór Blöndal) :
Hæstv. forseti. Þetta frv. er einfalt í sniðum, tvær greinar, ein setning hvor. Fyrri greinin hljóðar svo:
,,Lán úr ferðamálasjóði skulu veitt til allt að 25 ára.``
Ástæðan er sú að það hefur komið í ljós að lán til Ferðamálasjóðs hafa verið til óþarfleg skamms tíma eða einungis til 15 ára, sem hefur oft valdið erfiðleikum og vanskilum eða þá auknum kostnaði með því að til lánalengingar hefur komið úr sjóðnum.
Eins og hv. þingmönnum er kunnugt þá steðjar rekstrarvandi að ýmsum í ferðaþjónustu. Það á ekki síst við um hótel úti á landsbyggðinni sem eru starfrækt allt árið. Í grg. er það orðað svo að þessi hótel séu oft og tíðum ,,flaggskip ferðaþjónustunnar`` í viðkomandi landshluta. Flaggskip þá á þurru landi. Eins er það hér í Reykjavík að þessi tími hefur reynst of skammur, en ef tekin er hliðsjón af Iðnlánasjóði og Stofnlánadeild landbúnaðarins þá er hámarkslánstími til nýrra bygginga 25 ár. Ég tel eðlilegt að sá hinn sami háttur verði hafður á.
Þessi niðurstaða liggur fyrir í nefnd sem starfaði undir forustu hv. þm. Sturlu Böðvarssonar og málið hefur sérstaklega verið tekið til athugunar í efh.- og viðskn. Ég sé því ekki ástæðu af þeim sökum til að málinu verði vísað til nefndar þar sem það hefur þegar verið athugað í þingnefnd og legg til að því verði vísað til 2. umr.