Ferill 342. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1994–95. – 1064 ár frá stofnun Alþingis.
118. löggjafarþing. – 342 . mál.
720. Frumvarp til laga
um breyting á barnalögum, nr. 20 22. maí 1992.
(Eftir 2. umr., 21. febr.)
1. gr.
Við 3. mgr. 37. gr. laganna bætist nýr málsliður, svofelldur: Ef sérstaklega stendur á getur sýslumaður að ósk foreldris, sem ekki hefur forsjá barns, mælt fyrir um rétt þess til að hafa bréfa- og símasamband og hliðstætt samband við barnið.
2. gr.
Við 39. gr. laganna bætist ný málsgrein, 2. mgr., svofelld:
Nú fara foreldrar sameiginlega með forsjá barns og er öðru foreldri þá óheimilt að fara með barnið úr landi án samþykkis hins.
3. gr.
Á eftir 40. gr. laganna kemur ný grein, 40. gr. A, svofelld:
J. Réttur til upplýsinga um barn.
40. gr. A
Það foreldri sem ekki hefur forsjá barns á rétt á að fá frá hinu upplýsingar um hagi barns, þar á meðal varðandi heilsufar þess, þroska, dvöl á barnaheimili, skólagöngu, áhugamál og félags
Það foreldri sem ekki hefur forsjá barns á rétt á að fá upplýsingar um barnið frá barnaheimil
Stofnunum og stjórnvöldum, sem nefnd eru í 2. mgr., er þó heimilt að synja um upplýsingar ef hagsmunir foreldris af því að notfæra sér þær þykja eiga að víkja fyrir mun ríkari almanna- eða einkahagsmunum, þar á meðal ef telja verður að upplýsingar séu skaðlegar fyrir barn.
Skjóta má synjun um upplýsingar um barn skv. 3. mgr. til sýslumanns innan tveggja mánaða frá því að foreldri var tilkynnt um ákvörðunina. Ákvörðun sýslumanns samkvæmt þessari máls
Þegar sérstaklega stendur á getur sýslumaður ákveðið að ósk forsjárforeldris að svipta hitt foreldrið heimild til að fá upplýsingar skv. 2. mgr. Um kæru slíkrar ákvörðunar sýslumanns fer skv. 74. gr. þessara laga.
4. gr.
Við 52. gr. laganna bætist ný málsgrein, 3. mgr., svohljóðandi:
Dómsmálaráðuneytið getur heimilað að mál verði höfðað eftir lok fresta þeirra er greinir í 2. mgr. ef alveg sérstaklega stendur á. Á þetta einnig við þótt frestir til höfðunar vefengingar
5. gr.
3. mgr. 53. gr. laganna verður svofelld:
2. og 3. mgr. 52. gr. eiga við um mál samkvæmt þessari grein að breyttu breytanda.
6. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.