Ferill 332. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1994–95. – 1064 ár frá stofnun Alþingis.
118. löggjafarþing. – 332 . mál.


888. Frumvarp til laga



um breytingu á lögum um skipulag á fólksflutningum með langferðabifreiðum, nr. 53/1987, með síðari breytingum.

(Eftir 2. umr., 25. febr.)



1. gr.


    Við 1. gr. laganna bætist ný málsgrein, er verður 5. mgr., svohljóðandi:
    Heimild bifreiðastjóra til að stunda akstur samkvæmt lögum þessum fellur niður við lok 70 ára aldurs þeirra. Þó er heimilt að framlengja atvinnuleyfi til eins árs í senn allt til 75 ára aldurs leyfishafa ef hann telst hæfur á grundvelli hæfnisprófs og læknisskoðunar eftir því sem nánar er ákveðið í reglugerð.

2. gr.


    Við lögin bætist svohljóðandi ákvæði til bráðabirgða:
    Þrátt fyrir ákvæði 5. mgr. 1. gr. skulu þeir sem stunda akstur samkvæmt lögum þessum halda atvinnuréttindum sínum óskertum til 1. janúar 1996. Eftir þann tíma rennur heimild allra bif reiðastjóra til að stunda akstur bifreiða samkvæmt lögum þessum út við lok 70 ára aldurs þeirra nema þeir fái undanþágu á grundvelli 2. málsl. 5. mgr. 1. gr.

3. gr.


    Lög þessi öðlast þegar gildi.