Þingsetning

0. fundur
Þriðjudaginn 16. maí 1995, kl. 14:10:12 (2)

     


[14:10]
     Aldursforseti (Ragnar Arnalds) :
    Ég býð alla hv. alþingismenn, sem kjörnir voru í alþingiskosningunum 8. apríl 1995, velkomna til starfa. Sérstaklega býð ég velkomna 19 nýja alþingismenn sem ekki áttu hér sæti þegar Alþingi lauk störfum í febrúarmánuði sl. Ég óska nýskipaðri ríkisstjórn velfarnaðar í störfum og vil láta í ljós þá von að störf þessa nýkjörna Alþingis verði landi og þjóð til heilla.
    Fyrir hönd okkar alþingismanna heilsa ég starfsfólki Alþingis og vænti þess að við megum eiga góða samvinnu við það eins og endranær.