Kosning í kjörbréfanefnd, 9 manna, skv. 2. mgr. 1. gr. þingskapa

1. fundur
Miðvikudaginn 17. maí 1995, kl. 13:36:24 (7)


     Aldursforseti (Ragnar Arnalds) :
    Kjörbréfanefnd fær nú í hendur kjörbréf aðalmanna og varamanna sem landskjörstjórn hefur gefið út. Enn fremur fær nefndin í hendur bréf sem Alþingi hefur borist frá dómsmrn. um sex ágreiningsatkvæði í Reykjaneskjördæmi. Ég bið hv. 5. þm. Reykv., Sólveigu Pétursdóttur, að kveðja kjörbréfanefndina saman til fundar nú þegar í þingflokksherbergi Alþfl.