[16:58]
Forsætisráðherra (Davíð Oddsson) (andsvar) :
Herra forseti. Ég er sammála síðasta ræðumanni að það samstarf sem náðist um þessa vinnu á sl. þingi milli þingflokka hafi reynst farsælt og skilað góðum breytingum sem ég held að við getum verið bærilega ánægð með. Stjórnarskrá verður út af fyrir sig lengi í mótun og menn hrapa ekki að slíkum verkum. Ég tel þó að með þessari atlögu, ef má nota svo óvirðulegt orð um stjórnarskrána, hafi orðið ákveðin kaflaskil. Ég tek undir með hv. þm. að það sé eðlilegt við núverandi aðstæður að flokkarnir og formenn þingflokkanna sérstaklega velti fyrir sér framhaldinu, notfæri sér þann góða byr, þá góðu samstöðu sem var milli manna um þessa vinnu um framhaldið.
Varðandi stjórnarskrárnefndina, sem hefur starfað undir forsæti Matthíasar Bjarnasonar, fyrrv. alþm., hefur forsrn. reyndar ekki orðið mikið var við forræði málsins. Nefndin hefur verið mjög sjálfstæð í störfum og ég veit ekki annað en þegar menn hafa horfið frá störfum þar hafi nefndin sjálf skipað nýja menn til starfa innan nefndarinnar og þó hefur ráðuneytið eftir því sem ég best veit staðið fyrir greiðslum til nefndarinnar sem eru ekki háar á þessu tímabili.
Ég tel að það verði eðlilegt að núna verði ákveðin kaflaskil við þessa vinnu og vil nota tækifærið til að óska eftir því að við forustumenn í þinginu getum átt gott samráð við að móta næstu skref.