[18:47]
Kristín Ástgeirsdóttir (um fundarstjórn) :
Herra forseti. Málið snýst ekki um það hverjir eru lagðir að jöfnu í umræðum eða annars staðar í störfum hins háa Alþingis heldur vorum við að ræða um hagsmunaárekstra. Ég gerði athugasemd við það í vetur þegar í ljós kom að hv. þm. Ögmundur Jónasson ætlaði að bjóða sig fram til þings og vera jafnframt formaður BSRB vegna þess að ég tel að hann setjist þá beggja vegna borðsins sem hluti af löggjafanum sem setur lög og á hlut að kjarasamningum við opinbera starfsmenn. Það er hið háa Alþingi sem ákveður fjárveitingar. ( ÖJ: Fyrir alla þjóðfélagsþegnana.) Ekki síst . . . (Gripið fram í.) Það erum við sem förum með umboð . . .
( Forseti (GÁ) : Ekki samtal úr sal.)
til þess að setja ríkinu fjárlög. Við setjum ríkinu fjárlög og þar með hvað varðar starfsmannafjölda og það erum við sem höfum fjárveitingavaldið. Ég tel að hv. þm. geti lent í hagsmunaárekstrum . . .
( Forseti (GÁ) : Ræðan skal snúast um stjórn fundarins.) ( ÖJ: Skýra þetta nánar.)
Herra forseti. Það er greinilegt að það form sem við erum hér að ræða þetta mál undir dugar mér ekki til þess að svara þessum spurningum hv. þm. Ég er að sjálfsögðu reiðubúin til þess að ræða þetta við hann en það breytir ekki þeirri skoðun minni að hér er og getur iðulega verið um óeðlilegan hagsmunaárekstur að ræða þar sem menn sitja beggja vegna borðsins ( ÖJ: Barnabætur.) eins og var til í því dæmi sem við vorum að ræða hér um áðan.
( Forseti (GÁ) : Þingmaðurinn er að ræða um fundarstjórn forseta.)
Þingmaðurinn hefur að sjálfsögðu rétt til þess að sitja hér í sínu sæti og hafa skoðanir á öllum málum en hann verður auðvitað að meta það sjálfur hvenær hann telur að hann sé kominn í óeðlilega stöðu gagnvart því annars vegar að vera að ákveða fjárveitingar og setja lög og hins vegar að vera umbjóðandi stórra hagsmunasamtaka. Við höfum engar reglur um þetta. Það er alveg ljóst. ( ÓRG: Er þá ekki mikill hagsmunaárekstur fyrir þingmenn Kvennalistans að vera konur?)