[15:40]
Dómsmálaráðherra (Þorsteinn Pálsson) :
Herra forseti. Ég mæli fyrir frv. til laga um breyting á áfengislögum, nr. 82/1969, með síðari breytingum. Stærsta breytingartillagan sem þetta frumvarp felur í sér er sú að einkaréttur ríkisins til innflutnings og heildsöludreifingar á áfengi verður felldur niður. Er frumvarpið flutt í tengslum við tvö frumvörp sem hæstv. fjmrh. flytur og eru nú til meðferðar hér á Alþingi. Það eru frumvörp um gjald af áfengi og um breytingu á lögum um verslun ríkisins með áfengi, tóbak og lyf.
Frv. til laga um gjald af áfengi gerir ráð fyrir að tekna ríkisins af áfengi verði tryggilega aflað með nýju áfengisgjaldi sem innheimt verður í stað núverandi vínandagjalds við innflutning vörunnar, en einkaréttur ríkisins til innflutnings og heildsöludreifingar hefur einmitt helgast af því að það hefur verið talið nauðsynlegt að hafa þann hátt á til að tryggja öflun ríkissjóðstekna af innflutningi. Með þeim breytingum sem framangreind frumvörp fjmrh. gera ráð fyrir hafa forsendur breyst þannig að þau sjónarmið sem staðið hafa til að viðhalda einkarétti ríkisins til innflutnings og heildsöludreifingar á þessum vörum eiga ekki lengur við og í frv. til laga um gjald af áfengi. Í umsögn fjárlagaskrifstofu við þetta frumvarp kemur fram að þessi breyting mun ekki hafa áhrif á tekjur ríkissjóðs af áfengi.
Þessi breyting á áfengislögum hefur ekki áhrif á útsölu áfengis til almennings. Heildsalar og framleiðendur áfengis munu geta selt áfengi til Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins, til veitingastaða sem hafa almennt vínveitingaleyfi, til þeirra sem njóta úrlendisréttar, svo sem sendiráða og varnarliðsins, til tollfrjálsra verslana, svo sem á Keflavíkurflugvelli, og í tollfrjálsar forðageymslur og svo úr landi. Einstaklingar gætu hins vegar flutt inn áfengi til eigin nota og greiða þá áfengisgjald við tollafgreiðslu samkvæmt tillögum frv. til laga um áfengisgjald.
Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins, heildsalar og framleiðendur munu samkvæmt tillögu frumvarpsins geta selt áfengi til vínveitingastaða með almennt vínveitingaleyfi á öðru verði en til almennings ef þeir kjósa að lækka verslunarálagningu sína til þessara aðila. Sú breyting var einmitt önnur tveggja breytinga sem fólust í frv. til laga um breyting á áfengislögum sem lagt var fram á 117. löggjafarþingi og miðuðu að því að auðvelda opinbert eftirlit að því er þessa breytingu varðar með því að stuðla að því að veitingastaðir kysu fremur að hafa almennt eða fast vínveitingaleyfi fremur en að starfrækja reglulega starfsemi á grundvelli svonefndra tækifærisvínveitingaleyfa, en mjög erfitt hefur reynst að hafa eftirlit, þar með talið skatteftirlit, með ýmsum þáttum þeirrar starfsemi.
Hin breytingin sem tillaga var gerð um í frumvarpinu sem lagt var fram á 117. löggjafarþingi var að stemma stigu við framleiðslu tækja til ólöglegrar áfengisframleiðslu og þarf varla að fjölyrða um nauðsyn þess að gera allt sem mögulegt er til að þrengja að þeirri ólöglegu starfsemi sem byggir að verulegu leyti á sölu á landa til ungmenna og jafnvel barna. Þessa tillögu er af þessum ástæðum að finna í því áfengislagafrumvarpi sem hér er flutt þótt hún sé ekki beint tengd þeirri breytingu sem verið er að leggja til á aðferð við innheimtu ríkissjóðstekna af áfengi.
Herra forseti. Ég hef gert grein fyrir aðalefnisbreytingum sem þetta frumvarp felur í sér og legg til að því verði vísað til 2. umr. og hv. allshn. að þessari umræðu lokinni.