[14:35]
Sjávarútvegsráðherra (Þorsteinn Pálsson) :
Herra forseti. Undir lok umræðunnar þakka ég fyrir málefnalega umfjöllun sem hefur farið fram um þetta viðkvæma efni og ítreka að það hlýtur að vera von okkar allra alþingismanna að deiluaðilar undir stjórn ríkissáttasemjara nýti tímann vel sem eftir er til þess að freista þess að finna lausn.
Það er mín skoðun að eðlilegast sé að gert sé út um deiluefni eins og verðmyndun á fiski í samningum aðila. Núverandi löggjöf um það efni var breytt fyrir þremur árum að ósk sjómanna og útfærsla laganna var alfarið að þeirra ósk. Á þeim tíma gerðu allir sér grein fyrir því að þessi lög eru ekki fullkomin. En ég ítreka að hér var farið að ósk sjómanna.
Hv. 8. þm. Reykn. sagði að einvörðungu hefði strandað á sjútvrh. að samþykkja að allur fiskur yrði seldur á fiskmörkuðum. Ég vil aðeins rifja upp af því tilefni að hann er formaður í stjórnmálaflokki sem hefur það á stefnuskrá sinni að selja allan fisk á fiskmörkuðum nema af eigin skipum þannig að mér sýnist að stefna hans eigin flokks fullnægi ekki þeim kröfum sem hann var setja á hendur ríkisstjórninni en það er í sjálfu sér aukaatriði.
Við verðum að mínu mati að hafa í huga við allar leikreglur í þessu efni heildarhagsmuni sjávarútvegsins, ekki bara að finna lausn á deilum sjómanna og útvegsmanna. Við erum að tala um atvinnugrein sem felst í veiðum, vinnslu og markaðssetningu afurða. Allar leikreglur þurfa að tryggja heildarhagsmuni allra þessara þátta í sjávarútveginum og það hefur mótað afstöðu ríkisstjórnarinnar í þessu efni.
Herra forseti. Ég ítreka þakklæti mitt fyrir þessar umræður og óskir til samningsaðila um að þeim takist að ná sáttum í tæka tíð áður en verkfallið skellur á.