Úrelding smábáta

12. fundur
Fimmtudaginn 01. júní 1995, kl. 11:05:26 (380)


[11:05]
     Fyrirspyrjandi (Rannveig Guðmundsdóttir) :
    Virðulegi forseti. Það getur verið erfitt að orða slíka fsp. eins og ég setti fram fyrir nokkru og áður en hin eftirsóknarverðu sjávarútvegsfrumvörp birtust okkur alþingismönnum en spurningin hefur einmitt verið þessi: Er eitthvað því til fyrirstöðu að þetta verði hægt? Auðvitað þekki ég lagasetninguna sem slíka en það er líka alveg ljóst að þessari sömu spurningu hefur verið mjög undarlega svarað í ýmsum stofnunum þar sem mönnum hefur þótt þetta erfitt mál.
    Ég er auðvitað mjög spennt að sjá hvernig verður farið með skráninguna og hvaða möguleikar opnast við breytingar sem fyrirhugaðar eru í því frv. sem hér er til umræðu síðar í dag og lít með mikilli eftirvæntingu til þess hvernig það mál verður afgreitt í þinginu.