[18:55]
Sjávarútvegsráðherra (Þorsteinn Pálsson) :
Herra forseti. Hér er um að ræða efnisbreytingu á lögum um meðferð sjávarafurða og eftirlit með framleiðslu þeirra þar sem gert er ráð fyrir því að eftirlitsmönnum eftirlitsstofnunar EFTA verði heimilt í samvinnu við Fiskistofu og í fylgd starfsmanna hennar að gera vettvangsathugun hjá þeim aðilum sem fengið hafa vinnsluleyfi frá Fiskistofu. Þetta er í samræmi við samningsskuldbindingar okkar í EES-samningnum og gert í þeim tilgangi að viðkomandi aðilar geti sannreynt að uppfyllt séu þau skilyrði laga og reglna sem sett hafa verið með stoð í þeim samningi.
Ég legg til, herra forseti, að frv. verði að lokinni umræðunni vísað til 2. umr. og hv. sjútvn.