[13:56]
Margrét Frímannsdóttir :
Virðulegi forseti. Ég fagna alveg sérstaklega því frv. sem er til umræðu vegna þess að það er í fullu samræmi við það álit sem kom frá minni hluta heilbr.- og trn. á síðasta þingi þar sem núv. hæstv. heilbrrh. átti hlut að máli og var þá í stjórnarandstöðu ásamt okkur nokkrum öðrum í þáv. stjórnarandstöðuflokkum. Ég fagna því sérstaklega að hæstv. ráðherra skuli vera sjálfum sér samkvæmur og flytja frv. sem er nákvæmlega í anda þeirra skoðana sem hæstv. ráðherra lýsti þá.
Það er rangt að það hafi náðst um þetta mál samstaða eða sátt. Reynt var á sínum tíma að ná samningum einmitt um það að fresta gildistökunni eins lengi og þetta frv. kveður á um en það náðist ekki fram. Hins vegar var sú nefnd, sem hér hefur verið nefnd á nafn, sett á laggirnar til að skoða hvaða áhrif þessar breytingar á lyfjalögum mundu hafa. Sú nefnd hefur ekki lokið störfum og ekki er heldur búið að setja ýmsar þær reglugerðir sem átti að setja í framhaldi af því að lyfjalögin voru samþykkt á sínum tíma. Ég mæli eindregið með því að frv. fái fljóta og jákvæða afgreiðslu því að eins og ég segi vöruðum við í stjórnarandstöðunni sem þá var við því að lögin tækju gildi án þess að nokkur athugun hefði farið fram á því hvað breytingarnar á lyfjalögunum þýddu í raun og veru. Þar voru mjög margir óvissuþættir sem hafa ekki enn fengist svör við þannig að ég fagna sérstaklega þessu frv. hæstv. ráðherra.