Stjórn fiskveiða

16. fundur
Fimmtudaginn 08. júní 1995, kl. 19:53:58 (532)


[19:53]
     Gísli S. Einarsson (andsvar) :
    Herra forseti. Ég lýsti því áðan að hv. þm. Framsfl. hefðu marggefið fyrirheit um aukna hlutdeild og aukið frelsi til krókabáta og við það stend ég. Ef hv. þm. Magnús Stefánsson telur að í frv. sem liggur fyrir sé um að ræða aukið frelsi til krókaveiðibáta þá hefur hv. þm. einhvers staðar lært að skilja ritað mál á einhvern annan hátt en ég.