[20:58]
Össur Skarphéðinsson (andsvar) :
Hæstv. forseti. Sannast það nú sem ég hef jafnan sagt fyrr að þegar hv. þm. Guðjón Guðmundsson talar um sjávarútvegsmál þá talar hann af skyggnara mannviti en flestir flokksfélagar hans. Það átti bæði við um þá gagnrýni sem kom fram í örstuttu og kjarnyrtu máli hans varðandi frv. flokksfélaga hans, hæstv. sjútvrh., sem þá ágætu ræðu sem hann flutti við 1. umr. Hitt er rangt hjá hv. þm. að hann hafi ekki gefið fyrirheit um að þessu yrði breytt. A.m.k. gaf hann fyrirheit um það að hann mundi stuðla að því. Hvers vegna, herra forseti? Vegna þess að hann lýsti sinni sannfæringu mjög vel og stjórnarskráin segir að hv. þingmenn eigi að fara eftir sannfæringu sinni. Þess vegna ber hv. þm. Guðjóni Guðmundssyni að sýna þann trúnað við sjálfan sig og stjórnarskrána og það málefni sem hann berst fyrir að styðja þær brtt. sem hér eru fluttar og hann er í hjarta sínu nákvæmlega jafnsammála og ég er vegna þess að hann hefur þegar lýst því yfir.