Þróunarsjóður sjávarútvegsins

18. fundur
Föstudaginn 09. júní 1995, kl. 14:29:54 (581)

[14:29]
     Frsm. sjútvn. (Árni R. Árnason) :
    Herra forseti. Ég mæli fyrir nál. sjútvn. sem liggur fyrir á þskj. 65.
     Nefndin hefur rætt málið og fengið á sinn fund þá sem þar eru nefndir og leggur til eina breytingu við frv., sem birtist í þskj., um að við bætist nýtt bráðabirgðaákvæði sem þar er prentað.
    Herra forseti. Ég hef ekki frekar að segja um málið en aðrir þingmenn munu væntanlega gera grein fyrir fyrirvörum sínum við það.