[12:02]
Ögmundur Jónasson :
Hæstv. forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. félmrh. fyrir þau svör sem hann gaf í upphafi. Einnig hafa komið fram ýmsar fróðlegar upplýsingar og hugmyndir í þeim umræðum sem hér hafa farið fram. Hv. þm. Pétur Blöndal vakti t.d. máls á því að það væri þörf á ítarlegri umræðu og ráðgjöf í þjóðfélaginu til að forða okkur frá slysum, forða okkur frá húsbrunanum. Ég vil líka forða okkur frá brennuvörgunum vegna þess að á undanförnum árum, mér liggur við að segja áratugum, hefur lítill hluti þjóðarinnar verið á samfelldu vaxtafylleríi. Það hafa verið stofnuð fyrirtæki sem hafa staðið fyrir einhverjum arðvænlegasta en skaðvænlegasta atvinnurekstri í landinu, en þar erum við kominn í heim sem hv. þm. Pétur Blöndal þekkir mjög vel til í og þar ættu menn líka að líta í eigin barm.
Það er gott ef hæstv. ráðherra Páll Pétursson les það út úr stjórnarsáttmálanum að þar sé fólk haft í fyrirrúmi. Reyndar efast ég ekkert um að hann er heill í þeim ásetningi. En því miður held ég að ráðherrar leggi mismunandi skilning í órætt orðalag sáttmálans og endanlega skiptir það eitt máli hvað ríkisstjórnin framkvæmir. Og nú þarf að framkvæma til að aflétta neyðarástandi í húsnæðismálum sem hæstv. ráðherra tekur undir að sé fyrir hendi.
Það þarf að framkvæma. Í fyrsta lagi þarf samræmdar skattkerfisbreytingar, lækkun jaðarskatta og þetta þarf að gera í haust.
Ég hef vitnað í ítarlega útreikninga frá hagdeild BSRB þar sem sýnt er fram á hvernig blanda kjaraskerðingar, skattahækkana, lækkana barnabóta og vaxtabóta í tíð fyrrv. ríkisstjórnar skýrir hvers vegna stórir hópar í þjóðfélaginu eru nú í vanskilum í húsnæðiskerfinu. Og það þarf að taka á rótum þessa vanda. En því miður svaraði hæstv. félmrh. engu um þá fyrirspurn mína hvort það væri virkilega rétt að ríkisstjórnin ætlaði að láta þessar skattkerfisbreytingar bíða þar til í kjarasamningum undir áramótin 1997. E.t.v. getur hæstv. félmrh. séð það út úr stjórnarsáttmálanum að þar sé fólk í fyrirrúmi með góðum vilja, en kosningaloforðin eru þar því miður ekki í fyrirrúmi.
Ráðherra tók hins vegar undir það að koma þyrfti á bráðaþjónustu til aðstoðar fólki í bráðavanda. Þetta tek ég undir og fagna þessu. En spurningin er hvaða tæki ráðgjafarnir í bráðaþjónustunni hafa til að leysa úr vanda fólks. Ég tel að hér þurfi að koma til sérstakur björgunarsjóður. Ráðherra minntist ekki á slíkt í sínu svari og væri fróðlegt að fá hans hugmyndir um þetta. Hér þarf að koma til tafarlaus breyting á húsnæðisbótakerfinu sem yrði sveifujafnandi og tæki á vanda einstaklinganna og fjölskyldnanna. Þetta eru hvort tveggja ráðstafanir sem að mínu mati þarf að grípa til þegar í stað.
Þá þurfum við að hafa í huga það sem ég rakti einnig í mínu máli í upphafi að vandi stórs hluta einstaklinganna sem á í vandræðum mælist ekki í vanskilareikningum byggingarsjóðanna eða húsbréfakerfisins. Þetta er fólk sem ekki hefur haft efni á því að stofna til skulda. Þetta eru leigjendur eða fólk sem fellur á milli kerfanna, er utan garðs. Þetta eru hópar sem einnig þarf að huga að og reyndar er ég á þeirri skoðun að það þurfi tafarlaust að taka upp aðgerðir til aðstoðar leigjendum.
Þá er komið að fyrirbyggjandi aðgerðunum. Ég nefndi í því sambandi nauðsyn á því að lánshlutfall yrði þegar í stað hækkað upp í 75%. Hæstv. ráðherra mun hafa lýst því yfir að þetta yrði gert þegar í júní. Nú vil ég biðja hæstv. félmrh. að staðfesta við þingið að það verði gert. ,,Ef hann getur ekki staðfest það núna þá fæ ég ekki séð hvernig við getum lokið umræðu um húsnæðismál áður en þingi er slitið því það er útilokað að ljúka þingi nú öðruvísi en að ganga frá þessu máli með einhverjum viðunandi hætti.`` Þetta eru ekki mín orð. Þetta eru orð hæstv. félmrh., þáv. þm. Framsfl., skömmu fyrir þinglok fyrr á þessu ári.
Þetta eru þær spurningar sem ég vildi fá nánari útlistun ráðherrans á og legg að lokum áherslu á það að ef við ekki fáum staðfestingu á því að þegar í júní verði lánshlutfall hækkað upp í 75%, eins og hæstv. ráðherra hefur lýst yfir í fjölmiðlum, þá fæ ég ekki séð að við getum lokið umræðu um húsnæðismál áður en þinghaldi lýkur.