[12:19]
Ólafur Ragnar Grímsson :
Virðulegi forseti. Það mál sem hér hefur verið rætt í morgun snýr að vanda þúsunda heimila í landinu, alvarlegasta fjárhagsvanda sem heimilin í landinu eiga við að glíma og hafa átt um langa hríð.
Nú hefur það komið fram í þessum umræðum að hæstv. viðskrh. lýsti því yfir að tími aðgerða væri hafinn og jafnframt lýsti hæstv. félmrh. því yfir fyrir örfáum mínútum síðan að hann óskaði eftir aðstoð þingheims við sig og þá væntanlega ríkisstjórnina til að bregðast við þessum vanda. Hann upplýsti jafnframt að það væri enginn ágreiningur kominn fram við Sjálfstfl. um þessi mál milli stjórnarflokkanna. Ég fagna þessum yfirlýsingum, að þessir tveir hæstv. ráðherrar sem hér hafa talað telja að tími aðgerðanna sé kominn, það strandi ekki á neinum ágreiningi við Sjálfstfl. og menn óski eftir aðstoð.
Nú vill svo til að flutt var á síðasta þingi ágætt frv. um þetta efni, frv. um greiðsluaðlögun. Finnur Ingólfsson, núv. hæstv. viðskrh., var 1. flm. og síðan var allur þingflokkur Framsfl. á þessu frv. Þetta frv. var mjög ítarlega unnið og mig minnir t.d. að það hafi verið sótt í smiðju víða til þess að undirbúa það. Það vill einnig svo til að samkvæmt 28. gr. þessa frv. áttu þessi lög að öðlast gildi 1. júlí 1995. Nú gefst sem sagt tími, hæstv. félmrh., til þess að lögtaka þetta frv. fyrir 1. júlí 1995 og ég vil lýsa því hér yfir og óska eftir aðstoð virðulegs forseta eftir helgi, að ég mun beita mér fyrir því að þetta frv. verði flutt hér strax eftir helgi svo að þingið hafi aðstöðu til þess að afgreiða það fyrir lok þingsins þannig að það megi taka gildi 1. júlí 1995 eins og Framsfl. ætlaði á sínum tíma. Þetta er fullbúið frv., það tekur á þessu vandamáli. Það hafði verið unnið rækilega í því af hálfu Framsfl. Það hefur verið óskað hér eftir aðstoð okkar í þinginu við ríkisstjórnina og það er sjálfsagt að láta hana í té og ég vænti þess að Framsfl. muni þá eftir þessar yfirlýsingar sem hafa verið gefnar í dag taka saman höndum með okkur um að afgreiða þetta frv. áður en þingið fer heim svo að gildistaka megi verða, eins og ætlast var í upphafi, fyrir 1. júlí 1995.