[13:39]
Flm. (Svavar Gestsson) (andsvar) :
Virðulegi forseti. Ég óskaði eftir að veita andsvar vegna þess að ég er búinn að tala það sem ég má og hef þar af leiðandi ekki aðstæður til svara hæstv. ráðherra eins og þyrfti. Síðan veittist hann alveg sérstaklega . . . ( Gripið fram í: Þú mátt tala einu sinni til.) Nei, ég hef talað þrisvar samkvæmt skrá forseta.
( Forseti (ÓE) : Jú, það er búið.)
Auk þess er það þannig, bara út af því sem hæstv. ráðherra vék að hv. 8. þm. Reykn., þá getur hann eins og kunnugt er svarað fyrir sig. Hann er hins vegar fjarri núna. Og í tilefni af árásum ráðherra á þingmanninn áðan þá óska ég eftir því við hæstv. forseta að umræðunni ljúki ekki heldur verði henni frestað þannig að hv. 8. þm. Reykn. geti svarað hæstv. iðn.- og viðskrh. og farið aðeins nánar yfir mál með honum í framhaldi af þessum sérkennilegu árásum sem hæstv. ráðherra flutti hér áðan.
Það er greinilegt hvaða tón hann ætlar að temja sér í umræðunum í þinginu þannig að það er alveg prýðilegt að það skuli liggja fyrir. Það er greinilega nauðsynlegt að íhuga það vandlega sem ég sagði hér áðan og hæstv. félmrh. nefndi í morgun, að menn velti því fyrir sér að stofna bráðamóttöku, ekki bara fyrir kjósendur Framsfl. heldur líka frambjóðendur Framsfl. ef þeir eru svona á sig komnir í sálartetrinu eins og hæstv. iðn.- og viðskrh. áðan því raunin er sú, hæstv. forseti, að hann svaraði engu. Hér var fyrst og fremst um að ræða almenna útúrsnúninga, enga efnislega umræðu um þann veruleika að Framsfl. hefur ekki staðið við eitt kosningaloforð frá því að kosningarnar voru og hann kom í þessa stjórn. Ekki eitt einasta. Það er enginn að tala um öll. Menn eru að tala um að raða hlutunum í forgangsröð, en þeir hafa svikið þetta varðandi samtímalánin, þeir hafa ekki efnt það enn þá. Varðandi húsnæðismálin --- þeir nenna ekki að taka á þeim. Síðan kemur að fiskveiðimálunum þar sem kjósendur Framsfl., m.a. á Reykjanesi, sitja eftir með sárt ennið. En þeir hafa hlaupið í skítverkin fyrir íhaldið, í að einkavæða brennivínið og hjúfrað um sig á sessunum í flosstofum Sjálfstfl. og kunna vel við sig en gera ekkert af því sem lofað var. Niðurstaðan er sú að Framsfl. virðist ekki ætla að efna önnur loforð en þau sem Sjálfstfl. þóknast. Til hamingju með reisnina, hæstv. ráðherra.